Fimmta ráðstefna Íslenska stærðfræðafélagsins undir yfirskriftinni Stærðfræði á Íslandi er haldin á Leirubakka helgina 18. til 20. september 2009.
Íslenska stærðfræðafélagið var stofnað árið 1947. "Tilgangur félagsins er sá að stuðla að samstarfi og kynnum þeirra manna hér á landi, sem lokið hafa háskólaprófi í stærðfræðilegum greinum. Félagið heldur fundi, þar sem einstakir félagsmenn skýra frá athugunum sínum á stærðfræðilegum viðfangsefnum og skulu umræður um efnið fara fram ef þess er óskað".
Stofnfélagar voru 15 talsins en ekki hlaut félagsskapurinn nafn fyrr en rúmum fjórum árum síðar. Í dag eru félagsmenn á annað hundrað talsins.